Stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis Reiknistofu lífeyrissjóða hf. (RL) nær til reksturs, þróunar og þjónustu á Jóakim hugbúnaðarkerfinu og tengdri þjónustu sem veitt er íslenskum lífeyrissjóðum, stéttarfélögum og fjármálastofnunum. Stjórnunarkerfið nær til allra ferla, starfsfólks og upplýsingatæknieigna sem taka þátt í því að veita örugga og áreiðanlega vinnsluþjónustu frá starfsstöðvum RL og öðrum stoðinnviðum. RL fór í gegnum fullnaðarúttekt í janúar og í dag, 4/3 2026, var gefið út skírteini til vottunar þess að RL hafi staðist úttekt og uppfylli formlegar kröfur.
Skírteinið má nálgast hér: ISO27001