Öryggisátak Aftra er mánaðarlangt netöryggisátak sem netöryggisfyrirtækið Aftra stendur fyrir í október ár hvert en október er alþjóðlegi netöryggismánuðurinn.
Helstu atriði átaksins:
- Markmið: Að efla öryggisvitund, styrkja grunnöryggi fyrirtækja, kortleggja stafræn fótspor og draga úr áhættu gagnvart netárásum.
- Fjögurra vikna áskoranir: Þátttakendur ganga í gegnum markvissar öryggisáskoranir og bæta öryggiseinkunn sína.
- Viðurkenningar: Fyrirtæki og stofnanir sem standa sig vel fá afhenta netöryggisviðurkenningu frá Aftra.
Starfsfólk RL tók þátt í átakinu nú í október og hefur RL fengið netöryggisviðurkenningu Aftra.
