Nýr starfsmaður

Nýjasti starfsmaður félagsins heitir Svanberg Hjelm Guðnason og tók hann til starfa sem kerfisstjóri hjá RL í apríl. Svanberg hefur áður starfað hjá Syndis, Borgun og Íslandsbanka. Mikill fengur er að því að fá Svanberg í hópinn og mun hann styðja við rekstur og öryggi kerfa félagsins. Alls eru nú starfandi 14 starfsmenn hjá RL. Af þeim eru fjórir í deildinni þjónusta og ráðgjöf og níu í deildinni þróun og rekstur.