RL hefur nú fengið viðurkenningu HR Monitor sem Mannauðshugsandi vinnustaður. Til að vera meðal leiðandi íslenskra vinnustaða sem uppfylla ströng skilyrði HR Monitor til að vera útnefndir Mannauðshugsandi vinnustaðir þarf að hafa á 12 mánaða tímabili keyrt mannauðsmælingar meðal allra starfsmanna vinnustaðarins í hverjum ársfjórðungi eða frá fjórum til tólf sinnum á líðandi ári. Upplýst starfsmenn reglulega um niðurstöður mannauðsmælinga og árangur vinnustaðarins. Ásamt því að veita stjórnendum yfirsýn yfir árangur sinna sviða, deilda og hópa. Með þessu móti er sýnt í verki að mannauður vinnustaðarins skiptir miklu máli.