ISAE 3402 type 2 - frumskýrsla tilbúin

Deloitte hefur undanfarið unnið að gerð ISAE 3402 Type 2 skýrslu fyrir RL. Timabilið sem er til skoðunar, er frá því RL tók við rekstri Jóakim kerfisins þann 1. júlí síðastliðinn og til síðustu áramóta. Frumskýrsla er nú tilbúin og nær hún til loka nóvember. Viðskiptavinir RL geta fengið eintak af skýrslunni afhent óski þeir þess. Áætlað er að lokaskýrsla verði tilbúin eigi síðar en í byrjun febrúar.