Fréttabréf mars 2026

Aðalfundur RL

Aðalfundur RL 2026 fór fram fimmtudaginn 5. mars síðastliðinn. Fyrir utan hefðbundin aðalfundarstörf, þá fór framkvæmdastjóri RL yfir almenna kynningu á rekstri félagsins og ýmsum verkefnum sem hafa verið í gangi. Fjárhagsleg afkoma félagsins á liðnu starfsári var nokkuð góð. Mæting hluthafa á fundinn var góð og voru þeir ánægðir með stöðu og rekstur félagsins.

ISAE 3402 úttekt

Mikilvægt er fyrir viðskiptavini RL að geta treyst því að öryggis- og gæðamál hjá RL séu í góðu horfi. Frá því RL tók við Jóakim kerfinu hefur árlega verið framkvæmd ISAE 3402 úttekt hjá félaginu. Niðurstöður úttekta eru birtar í árlegri skýrslu og hefur RL staðist þessar úttektir með sóma. Í janúar lauk úttekt vegna ársins 2025 og var gefin út skýrsla í kjölfarið. Viðskiptavinir geta haft samband við RL ef þeir vilja fá eintak af skýrslunni.

RL fær ISO 27001 vottun

Stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis RL nær til reksturs, þróunar og þjónustu á Jóakim hugbúnaðarkerfinu og tengdri þjónustu. Stjórnunarkerfið nær til allra ferla, starfsfólks og upplýsingatæknieigna. RL fór í gegnum fullnaðarúttekt í janúar og fyrir nokkrum dögum var gefið út skírteini til vottunar þess að RL hafi staðist úttektina og uppfylli kröfur staðalsins. Þetta er mikið ánægjuefni og enn frekari staðfesting á góðri stöðu öryggis- og gæðamála hjá RL.

Notendaviðmót Jóakim kerfisins

RL hætti samkeyrslu eldri útgáfu notendaviðmóts Jóakim kerfisins í byrjun janúar samkvæmt áætlun. Ný útgáfa hefur nú alveg tekið við af þeirri eldri. RL hefur þegar hafið undirbúning á enn frekari breytingum á viðmótinu. Á næstunni verður uppfærsla sem hefur áhrif á útlit allra skjámynda í kerfinu. Framþróun á notendaviðmótinu verður áfram ein af aðaláherslum félagsins.

Endurnýjun vefja

Snemma í janúar lauk stóru verkefni sem hefur verið í gangi síðan um mitt ár 2024, þegar síðustu gömlu Sjóðfélagavefjunum, Félagavefjunum og Launagreiðendavefjunum var lokað. Þetta var mikilvægur áfangi vegna ýmissa tæknilegra og öryggistengdra atriða. Nýir vefir sem viðskiptavinir RL hafa nú sett upp eru allir með betri tækni, meira öryggi og notendavænna útliti. Starfsfólk RL vill þakka viðskiptavinum sínum fyrir frábært samstarf í þessu stóra og mikilvæga verkefni.