Þjónustukönnun
Árleg þjónustukönnun var lögð fyrir notendur Jóakim kerfisins í febrúar og mars sl. Er þetta fjórða árið í röð sem slík könnun er framkvæmd. Það er mikilvægt fyrir RL að vera í góðu sambandi við notendur kerfisins og skilja þarfir notenda. Í þjónustukönnuninni var spurt út í viðhorf notenda til RL, til þjónustu sem RL veitir, til Jóakim kerfisins og annarra tengdra þátta. Heildarútkoma könnunar er nokkuð svipuð og á síðasta ári. Ánægjulegt er að sjá að notendur eru ánægðir með viðmót starfsfólks RL og hve áreiðanleg þjónusta RL er. RL notar niðurstöður úr könnunum til að skerpa áherslur sínar í stefnumiðaðri stjórnun og við val á verkefnum.
Gervigreind
Á síðasta ári samdi RL við APRÓ um aðgang að gervigreindarhraðli þeirra. Um sérsniðna þjónustu er að ræða þar sem gagnaöryggi og praktísk nálgun eru í fyrirrúmi. Frá þeim tíma hefur RL unnið markvisst að hagnýtingu gervigreindar í rekstri félagsins. RL er nú komið á þann stað að þróun hugbúnaður í bæði eldri og nýrri tæknihögun félagsins er unnin að hluta með gervigreind. RL sér fram á meiri hraða í þróunarverkefnum vegna notkunar á gervigreind, sem mun stuðla að hraðari umbreytingu á Jóakim kerfinu. RL er einnig að stíga fyrstu skrefin í notkun á gervigreind á þjónustuborði og sér tækifæri til að þróa notkun á gervigreind áfram í þjónustu og ráðgjöf.
Heimsóknir til viðskiptavina
RL vill styrkja tengsl við viðskiptavini sína og starfsmenn þeirra. Starfsfólk úr þjónustu og ráðgjöf hefur undanfarið heimsótt viðskiptavini RL, til að greina og kortleggja verklag, m.a. fyrir ferlavæðingu í Jóakim. Starfsmenn RL deila sinni þekkingu á sama tíma sem starfmenn RL læra af reynslumiklum starfsmönnum viðskiptavina. Heimsóknirnar hafa verið bæði skemmtilegar og gagnlegar. RL mun halda áfram að heimsækja ýmsa viðskiptavini sína á næstu mánuðum í þessum tilgangi.
Þjónusta í sumar
Lokað verður hjá RL á morgun 17. júní, en að öðru leyti verður full þjónusta hjá RL í sumar, alltaf er opið frá kl.9-16 mánudaga til fimmtudaga og kl.9-15 á föstudögum.