Deloitte gefur út ISAE 3402 lokaskýrslu

Deloitte hefur undanfarið unnið að gerð ISAE 3402 type 2 skýrslu fyrir RL og er þessari vinnu nú lokið. Tímabilið sem úttektin nær yfir er frá því RL tók við rekstri Jóakim kerfisins þann 1. júlí síðastliðinn og til síðustu áramóta. Lokaskýrslan er nú tilbúin og geta viðskiptavinir RL fengið eintak af skýrslunni afhent óski þeir þess með því að hafa samband við adstod@rl.is