Aðalfundur RL 2026 fór fram fimmtudaginn 5. mars.
Jóhann Steinar Jóhannsson stjórnarformaður RL og framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs setti fundinn. Jón L. Árnason frá Almenna-Lífsverk lífeyrissjóði var kjörinn fundarstjóri og Margrét Sigurbjörnsdóttir frá RL var valin fundarritari. Á fundinn voru mættir fulltrúar yfir 97% hlutafjár í félaginu, flestir á staðnum en einn var á fjarfundi. Stjórnarformaður flutti skýrslu stjórnar, síðan kynnti Jón Egilsson framkvæmdastjóri RL ársreikning félagsins fyrir liðið starfsár og fór síðan yfir ýmsar aðrar upplýsingar úr rekstri félagsins. Eftir það tóku við önnur hefðbundin aðalfundarstörf.
Jóhann Steinar Jóhannsson, Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs og Skúli Geir Jensson forstöðumaður upplýsingatækni hjá Gildi lífeyrissjóði voru kjörnir í stjórn. Í varastjórn voru kjörnir Gylfi Jónasson framkvæmdastjóri Festu lífeyrissjóðs, Guðmundur Stefán Steindórsson framkvæmdastjóri SL lífeyrissjóðs og Haukur Jónsson framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja.
Fjárhagsleg afkoma félagsins á liðnu starfsári var nokkuð góð og heldur yfir áætlun. Fundarmenn komu á framfæri þakklæti til stjórnar og starfsmanna félagsins fyrir vel unnin störf síðastliðið ár.